Fréttir

Lagnir

Töluvert rask er á veginum til saltsins
Töluvert rask er á veginum til saltsins
1 af 4

Til að nýta tækifærið til fulls áður en gengið er endanlega frá kápu á bryggjunni er gert ráð fyrir rafmagnsleiðslum, vatnspípum og ljósleiðara alla leið niður á höfn. Þetta þýðir að skurðir eru meðfram vegum og rásir liggja þvert á planið framan við Þörungaverksmiðjuna. Verktakar koma reglulega inn til að láta vita um næstu skref. Sumir hafa fengið lánuð endurskinsföt, aðrir kaffisopa. Þetta eru mörg handtök en næsta víst að höfnin verður til sóma loksins þegar verkinu lýkur.