Þessi loftmynd (Árni Geirsson, ALTA) sýnir vel þann urmul af eyjum og hólmum sem eru í námunda Reykhóla. Í Breiðafirði er aðallega skorinn hrossaþari (Laminaria digitata). Þarinn er stórvaxinn og getur náð 20-25 m lengd. Hann situr dýpra en þangið og vex á milli eyja og skerja. Mjölið er oft ólífugrænt og framleitt í nokkrum kornastærðum. Vegna eldvirkni á Íslandi getur þarinn innihladið snefil af þungmálum eins og Arseni og Cadminum en innihaldið sveiflast. Öryggisblaðið er sett saman af viðurkenndum greiningar- og eftirlitsstofnunum. Þaramjöl er blanda af snefilefnum og steinefnum og lífrænu efni sem losnar við niðurbrot. Innihaldið breytist þó eitthvað eftir árstíðum en þari er helst skorinn um vetur og haust.
Útlit mjölsins |
|||
Merking og kornastærð |
LAM 50 Mjög fínt mjöl brúnt /grænt |
LAM 20 / 50 Blanda af mjöli og meðalgrófum flögum |
Lam 40 Mjöl |
Öryggisblað og yfirlýsing um óæskileg efni |
|||
Dæmigert næringargildi |
Innihaldslýsing | Innihaldslýsing | Innihaldslýsing |
Upplýsingar um verð |
info (hjá) thorverk.is | info (hjá) thorverk.is | info (hjá) thorverk.is |
Fyrir þá sem vilja kaupa minna en 25 kg poka t.d fyrir garðrækt þá er bent á Ingvar Samúelsson, Reykhólum. Hann afgreiðir mjöl í 10 lítra fötum sem henta vel kartöflu- og annars konar matjurtaræktun. Einnig er bent á plöntunæringuna Græði en hún er framleidd í hentugu fljótandi formi sem nýtist gróðurhúsum, görðum og stofuplöntum. Græði má finna á facebook á vegum Guðjóns Dalquist